Fotbolti.net
18.06.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ritchie De Laet til Norwich (Staðfest)

Ritchie De Laet til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur fengið varnarmanninn Ritchie De Laet á láni frá Manchester United.

Þessi 22 ára gamli Belgi var á ferðinni á síðasta tímabili þegar hann fór til Sheffield United, Preston og Portsmouth á láni.

Hann mun núna halda ferðalagi sínu áfram og vera á láni hjá nýliðum Norwich næsta vetur.
,,Ég er mjög ánægður með að halda áfram að vaxa sem ungur leikmaður hjá Norwich,\" sagði De Laet.

,,Ég veit að það verður erfitt að komast í liðið því strákarnir þarna hafa staðið sig mjög vel.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.