18.06.11 - 09:52
Hafliði Breiðfjörð
Sylvain Marveaux til Newcastle (Staðfest)

Alan Pardew.

Mynd: Getty Images

Alan Pardew.

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur gert fimm ára samning við franska kantmanninn Sylvain Marveaux sem kemur til félagsins frá Rennes í Frakklandi.
Marveaux sem er 25 ára gamall vinstri kantmaður hefur verið orðaður við Liverpool undanfarna mánuði en sagði frá því í gær að upp úr viðræðum við það félag hafi slitnað á fimmtudaginn.
,,Það er fengur að hafa samið við Sylvain sem mörg félög hafa sýnt áhuga,\" sagði Alan Pardew stjóri Newcastle.
,,Hann er kannski ekki þekktur í augum margra af stuðningsmönnum okkar en hann er leikmaður sem við höfum fylgst með í nokkurn tíma.\"
Marveaux er þriðji Frakkinn sem Newcastle fær á stuttum tíma, á eftir Hatem Ben Arfa og Yohan Cabaye. Hann kemur degi eftir að félagið keypti Demba Ba en félagið hefur látið Kevin Nolan til West Ham.

Heimild: BBC