Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 19:34
Brynjar Ingi Erluson
Milos skiptir um félag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum (Staðfest)
Milos gerði tveggja ára samning við Sharjah
Milos gerði tveggja ára samning við Sharjah
Mynd: Sharjah
Milos Milojevic er tekinn við Sharjah FC í úrvalsdeildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Á dögunum náði Milos samkomulagi um að rifta samningi sínum við Al Wasl, sem leikur í sömu deild.

Milos gerði Al Wasl að tvöföldum meistara á síðasta ári en náði ekki fylgja því á eftir. Liðið var ekki með í titilbaráttunni á nýafstöðnu tímabili og tapað síðan úrslitaleik Forsetabikarsins.

Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum hjá Al Wasl, en náði samkomulagi við stjórnina um að rifta honum.

Milos, sem þjálfaði Breiðablik og Víking hér heima, var ekki lengi að finna sér nýtt starf en hann er tekinn við sem þjálfari Sharjah, sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar á síðasta tímabili.

Sharjah hefur sex sinnum orðið deildarmeistari og vann þá B-keppni Meistaradeildar Asíu í fyrsta sinn í sögu félagsins með því að vinna Lion City, 2-1, í úrslitum í síðasta mánuði.

„Að hefja nýja vegferð saman er alltaf mjög sérstakt og er það mér alger heiður að vera þjálfari ykkar, þar sem við munum ekki bara byggja lið heldur sterka og stuðningsríka fjölskyldu. Æfum af fullum krafti, spilum heiðarlega og njótum hvers einasta augnabliks á tímabilinu sem er framundan. Saman munum við skrifa fyrstu kaflana af einhverju ótrúlegu,“ sagði Milos á Instagram.

Milos hefur náð eftirtektarverðum árangri á alþjóðagrundu, en hann þjálfaði áður sænsku liðin Mjällby, Malmö og Hammarby ásamt því að hafa stýrt Rauðu stjörnunni í Serbíu.


Athugasemdir
banner
banner