Fotbolti.net
18.07.07 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Real Zaragoza fær Pavon frá Real Madrid (Staðfest)

Real Zaragoza fær Pavon frá Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Zaragoza hefur fengið varnarmanninn Francisco Pavon frítt frá Real Madrid en samningur hans við Spánarmeistarana var runninn út.
Þessi 27 ára gamli leikmaður sem er uppalinn hjá Real Madrid hefur gert fjögurra ára samning við Zaragoza.

Pavon sem lék alls 162 leiki á ferli sínum með Real Madrid var ekki boðinn nýr samningur hjá félaginu.

Hann var orðaður við Bolton í apríl en samdi að lokum við Zaragoza.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.