Fotbolti.net
18.07.09 - 13:15
Hafliði Breiðfjörð

Jason Scotland til Wigan (Staðfest)

Jason Scotland.

Jason Scotland.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur gengið frá 2 milljón punda kaupum á Jason Scotland framherja Swansea sem er kominn með atvinnuleyfi og búinn að gangast undir læknisskoðun.
Gengið var frá félagaskiptunum í síðustu viku en þá var beðið eftir að hann fengi atvinnuleyfi og vegabréfsáritun frá heimalandi sínu, Trinidad & Tobago sem nú er frágengið.

Scotland sem er 30 ára gamall verður þriðju kaup Wigan eftir að Roberto Martinez tók við liðinu í sumar.

,,Jason er með markaskorun í genunum, ég get ekki útskýrt það öðruvísi,\" sagði Martinez á vef Wigan. ,,Allir stjórar vilja leikmann sem hefur náttúrulega hæfileika við að láta eitthvað gerast í teignum.\"

Scottland skoraði 24 mörk í Championship deildinni á síðustu leiktíð auk fimm marka í öðrum keppnum. Hann vakti mikla athygli þegar hann skoraði í sigrinum á þáverandi bikarmeisturum í Portsmouth í bikarkeppninni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.