Fotbolti.net
18.07.09 - 18:49
Hafliði Breiðfjörð

Emmanuel Adebayor til Manchester City (Staðfest)

Adebayor er farinn til Man City.

Adebayor er farinn til Man City.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City staðfesti nú í kvöld að framherjinn Emmanuel Adebayor sé genginn í raðir félagsins frá Arsenal en hann gerði fimm ára samning við félagið.
Hann bætist í stóran framherjahóp liðsins en áður höfðu Roque Santa Cruz og Carlos Tevez komið í sumar og fyrir voru þeir Robinho, Craig Bellamy, Valeri Bojinov og Benjani hjá félaginu.

,,Ég get ekki beðið eftir að spila fyrir stuðningsmenn City og sýna þeim hvað ég get gert,\" sagði hann. ,,Ég fæddist til að spila fótbolta og það er það sem ég vil gera. Ég verð að koma hingað og skapa söguna fyrir félagið og þessa stuðningsmenn.\"

Adebayor sem er frá Togo er talinn hafa kostað félagið 25 milljónir punda en hann komst í gegnum læknisskoðun í dag og er þegar kominn með atvinnuleyfi. Hann hafði einnig verið orðaður við AC Milan og Chelsea.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.