18.07.11 - 12:17
Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Harpa í leik með Breiðablik gegn Stjörnunni. Edda María Birgisdóttir sækir að henni. Þær eru báðar komnar til Stjörnunnar í júlíglugganum, Edda María kom frá ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Harpa í leik með Stjörnunni þegar hún lék þar síðast.

Landsliðskonan Harpa Þorsteinsdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Harpa kemur til félagsins frá Breiðabliks sem hún hefur spilað með síðan árið 2008. Hún er annar leikmaðurinn sem snýr aftur heim til Stjörnunnar í félagaskiptaglugganum því Edda María Birgisdóttir kom fyrir helgi frá ÍBV.

Klár stefna hjá Stjörnunni að vinna titla
,,Stjarnan er mitt uppeldisfélag og þær eru að gera góða hluti núna. Það eru spennandi tímar þar framundan,\" sagði Harpa við Fótbolta.net í dag
,,Það voru nokkur lið sem höfðu samband en mínir fyrstu kostir voru Breiðablik eða Stjarnan. Mér hefur liðið vel hjá Breiðablik og Stjarnan er uppeldisfélagið mitt. Ég var allan tímann að hugsa þessa tvo kosti.\"
Stjarnan er í toppsæti Pepsi-deildar kvenna með 24 stig, tveimur stigum meira en Valur sem er í öðru sæti. Harpa vonast eftir að fagna titli í haust.
,,Það er klár stefna hjá Stjörnunni að fara að vinna titla, bæði á þessu tímabili og í framtíðinni. Það verður spennandi að taka þátt í þessu með þeim allavega í haust,\" sagði Harpa.
Átti barn fyrir þremur mánuðum síðan
Hún eignaðist barn fyrir þremur mánuðum síðan en hefur verið að æfa fótbolta upp á síðkastið og er klár í slaginn þegar kallið kemur hjá Stjörnunni.
Hún hefur mikla reynslu og hefur spilað 150 leiki og skorað 64 mörk í deild og bikar. Hún hefur leikið 16 leiki fyrir A-landslið Íslands.
,,Ég er bara öll að koma til, ég byrja bara rólega og sé bara hvernig standi ég er í. Það er bara plús ef ég get hjálpað. Ég var byrjuð að æfa með Breiðabliki og svo fór ég til Spánar. Svo var ég bara að koma heim og er búin að æfa smá.\"
,,En maður finnur það ekki fyrr en maður kemst í action í hvernig standai maður er. Ég er klár þegar kallið kemur, hvort sem það verður í næsta leik eða eftir næsta hlé sem Láki er að hugsa. En ég vonast bara eftir að fá að spila eitthvað.\"