Fotbolti.net
18.07.11 - 14:31
Hörður Snævar Jónsson

Denilson lánaður til Sao Paulo (Staðfest)

Denilson lánaður til Sao Paulo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur lánað miðjumanninn Denilson til Sao Paulo í Brasilíu.
Arsene Wenger ákvað að leyfa Denilson að fara til heimalandsins eftir að leikmaðurinn hafði átt erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð.

Þessi 23 ára gamli miðjumaður kom til Arsenal frá Sao Paulo árið 2006.

Hann vill fá að spila reglulega og því gat Wenger ekki lofað honum.

,,Ég spila í Brasilíu á næstu leiktíð og mér finnst það gott tækifæri til að spila reglulega,\" sagði Denilson.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.