18.07.11 - 18:32
Alexander Freyr Tamimi
Shay Given til Aston Villa (Staðfest)

Shay Given er genginn til liðs við Aston Villa.

Mynd: Getty Images

Shay Given er genginn til liðs við Aston Villa.

Mynd: Getty Images
Shay Given markvörður er genginn til liðs við Aston Villa frá Manchester City og skrifaði Írinn undir fimm ára samning við félagið sem gildir þar til hann er orðinn fertugur.
Given fékk lítið sem ekkert að spila með Manchester City á síðasta tímabili en hann mun að öllum líkindum verða aðalmarkvörður Villa.
,,Aston Villa er stórt félag og ég er mjög spenntur að vera kominn hingað,\" sagði Given.
,,Allir vita að ég fékk ekki að spila nóg á síðasta tímabili en ég er mjög glaður að geta leiðrétt það hér. Vonandi munu þessi félagsskipti koma mér aftur á þann stall sem ég var á í úrvalsdeildinni.\"

Heimild: Vefur Aston Villa