Fotbolti.net
18.08.10 - 17:10
Magnús Már Einarsson

Dekel Keinan til Blackpool (Staðfest)

Dekel Keinan til Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur samið við ísraelska varnarmanninn Dekel Keinan en hann kemur frítt til félagsins frá Maccabi Haifa.

Þessi 25 ára gamli leikmaður skrifaði undir eins árs samning með möguleika á árs framlengingu.
Keinan er sjöundi leikmaðurinn sem Blackpool fær í sumar en hann fer beint inn í leikmannahópinn sem mætir Arsenal á laugardag.

,,Ég hlakka til fyrsta leiksins og ég er ánægður með að það er búið að ganga frá öllu,\" sagði Keinan.

,,Ég hafði nokkur tilboð en eftir að ég hitti stjórann var ég viss um að ég vildi spila fyrir Blackpool.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.