18.08.10 - 15:26
Jóhann Óli Eiðsson
Kevin-Prince Boateng til Genoa en samt til Milan (Staðfest)

Farinn til Genoa, eða AC Milan eftir því hvernig maður lítur á málið

Mynd: Getty Images

Kevin-Prince Boateng hefur gengið til liðs við Genoa á Ítalíu og er kaupverð talið vera í kringum fimm milljónir punda. Hins vegar mun hann ekki leika með liðinu á komandi leiktíð því félagið ætlar að lána hann til AC Milan.
Hinn 23 ára gamli miðjumaður heillaði forráðamenn Ítölsku liðanna á heimsmeistaramótinu sem fram fór nú í sumar en það hjálpaði einnig til að fyrrum lið hans, Portsmouth, á varla krónu og féð sem fékkst fyrir Ghanverjann var því kærkomið.
Þrátt fyrir að hafa skrifað undir samning hjá Genoa mun Boateng spila með AC Milan á komandi leiktíð því Genoa lánaði hann þangað út tímabilið en AC Milan hefur einnig forkaupsrétt á kauða. Það verður því að teljast líklegt að ef hann stendur sig á San Siro, gæti Genoa grætt stórfé á þessum kaupum.
Boateng lék 27 leiki fyrir Portsmouth á tíma sínum þar og skoraði fimm mörk. Hann á að auki sex landsleiki að baki fyrir Ghana og hefur skorað eitt landsliðsmark.

Heimild: Sporting Life