Fotbolti.net
18.08.11 - 11:10
Magnús Már Einarsson

Arnór Sveinn til Hönefoss á láni (Staðfest)

Arnór Sveinn til Hönefoss á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Norska félagið Hönefoss hefur fengið varnarmanninn Arnór Svein Aðalsteinsson á láni frá Breiðabliki til áramóta.
Arnór Sveinn hélt í morgun til Noregs til að skrifa undir samninginn eins og kom fram á Fótbolta.net.

,,Knattspyrnudeildin harmar að geta ekki orðið fyrst til að flytja fréttir af atburðinum en sá sér ekki fært að tilkynna um félagaskiptin fyrr en öll atriði voru frágengin. Arnór Sveinn hefur lengi stefnt á atvinnumennsku og stóð það til boða nú,\" segir í yfirlýsingu frá Breiðabliki.

,,Knattspyrnudeild Breiðabliks samþykkti lán á leikmanninum eftir að Hönefoss gekk að skilmálum deildarinnar. Arnóri er óskað góðs gengis í Noregi á komandi mánuðum.\"

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið alla sína tíð með Breiðabliki en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2004.

Samtals hefur Arnór leikið 125 deildar og bikarleiki með Breiðablik og skoraði í þeim fimm mörk.

Arnór hefur einnig verið í íslenska landsliðshópnum að undanförnu en hann á tíu A-landsleiki að baki.

Kristján Örn Sigurðsson, félagi Arnórs úr íslenska landsliðinu, er á mála hjá Hönefoss en liðið er í fjórða sæti í norsku fyrstu deildinni sem stendur, fimm stigum á eftir toppliði Sandnes Ulf.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.