Fotbolti.net
18.09.09 - 08:16
Magnús Már Einarsson

Lucas Neill til Everton (Staðfest)

Lucas Neill til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur gert eins árs samning við varnarmanninn Lucas Neill.
Þessi 31 árs gamli Ástrali hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf West Ham í sumar.

Hann hafnaði tilboði frá Sunderland og West Ham auk þess sem hann átt í viðræðum við Atletico Madrid áður en hann samdi við Everton.

Neill lék áður með Blackburn áður en hann fór til West Ham árið 2007 eftir að hafa hafnað tilboði frá Liverpool.

,,Ég er ánægður. Það er mjög sjaldgæft að þú getir fengið leikmann þegar að félagaskiptaglugginn er lokaður en sem betur fer var hann samningslaus og við gátum fengið hann hingað,\" sagði David Moyes stjóri Everton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.