18.09.09 - 17:32
Magnús Már Einarsson
James Vaughan til Derby á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Derby County hefur fengið James Vaughan framherja Everton á láni í þrjá mánuði.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur skorað sjö mörk í 49 leikjum með Everton á ferlinum hingað til.
Árið 2005 varð hann yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins þegar að hann kom inn á gegn Crystal Palace.
Vaughan var þá 16 ára og 271 daga gamall en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði í leiknum og varð um leið yngsti markaskorarinn í sögu félagsins.
Vaughan á það met ennþá en hins vegar sló Jose Baxter metið yfir yngsta leikmanninn í fyrra þegar að hann kom inn á gegn Blackburn.

Heimild: BBC