Fotbolti.net
18.09.19 - 13:04
Elvar Geir Magnússon

De Jong setti 'læk' við að reka ætti þjálfarann

Frenkie de Jong.

Frenkie de Jong.

Canon

Mynd: Getty Images

Frenkie de Jong, leikmaður Barcelona, setti 'læk' á ummæli á Instagram þar sem kallað er eftir því að Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, verði rekinn.

Barcelona gerði jafntefli gegn Dortmund í Meistaradeildinni en Börsungar áttu aðeins eitt skot á markið.

Börsungar fara hikstandi af stað og eru með tvo sigurleiki úr fjórum leikjum. Liðið er í fimmta sæti í La Liga.
Einhverjir stuðningsmenn Barcelona hafa verið að kalla eftir þjálfaraskiptum.

De Jong spilaði allan leikinn gegn Dortmund í gær.

#ValverdeOut skrifað einn einstaklingur á Instagram og hollenski miðjumaðurinn, sem kom frá Ajax í sumar, ýtti á like.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.