Fotbolti.net
18.10.06 - 21:59
Magnús Már Einarsson

Lárus Guðmundsson ráðinn þjálfari Stjörnunnar (Staðfest)

Fá Lárus sem þjálfara.

Fá Lárus sem þjálfara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Stjarnan úr fyrstu deild hefur ráðið Lárus Guðmundsson sem þjálfara liðsins en hann hefur undanfarið ár þjálfað annan flokk hjá félaginu. Lárus tekur við starfinu af Jörundi Áka Sveinssyni sem hefur þjálfað Stjörnuna undanfarin tvö ár.
Lárus var á sínum tíma atvinnumaður í Belgíu og Þýskalandi og þá lék hann fjölda leikja í efstu deild hér á landi, meðal annars með Stjörnunni. Hann lék á sínum tíma sautján A-landsleiki en á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað yngri flokka Stjörnunnar og Víkings auk meistaraflokks karla bæði hjá Víkingi og Afureldingu.

,,Það er mikill fengur fyrir Stjörnuna að fá Lárus til liðs við meistaraflokk félagsins og er hann boðinn velkominn til starfa á nýjum vettvangi. Um leið er Jörundi Áka þakkað heilladrjúgt starf í þágu félagsins," segir í fréttatilkynningu frá Stjörnunni í kvöld en liðið endaði í fimmta sæti í fyrstu deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.