18.11.09 - 08:13
Alexander Freyr Tamimi
Clare Sykes í Stjörnuna (Staðfest)

Clare Sykes er gengin til liðs við Stjörnuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Clare Sykes er gengin til liðs við Stjörnuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið til sín góðan liðsstyrk í formi hinnar bresku Clare Sykes. Sykes er miðjumaður og var hún einn af mikilvægustu leikmönnum Aftureldingar/Fjölnis á seinasta tímabili.
Lék hún alla 18 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Auk þess spilaði hún báða leiki liðsins í VISA-bikar kvenna.
Sykes hafði áður leikið við góðan orðstír í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún vann til margra verðlauna, bæði með liði sínu og sem einstaklingur.
Sykes er fyrsti leikmaðurinn sem Stjarnan fær til sín á þessu tímabili en liðið gerði nýlega langtímasamninga við marga af sínum sterkustu leikmönnum.