Fotbolti.net
18.11.09 - 12:12
Magnús Már Einarsson

Hjalti Már Hauksson í Víking R. (Staðfest)

Leifur Garðarsson þjálfari Víkings og Hjalti Már.

Leifur Garðarsson þjálfari Víkings og Hjalti Már.

Canon

Mynd: Víkingur R.

Víkingur R. hefur fengið varnarmanninn Hjalta Má Hauksson til liðs við sig frá KA.
Hjalti Már, sem er 23 ára, hefur gengið frá tveggja ára samning við lið Víkings.

Hjalti hefur leikið með KA undanfarin þrjú ár en í sumar lék hann alla leiki liðsins í 1.deildinni og VISA-bikarnum nema einn.

Alls hefur hann leikið 92 meistaraflokksleiki í deild og bikar með KA, KS/Leiftri og Leiftri/Dalvík.

Hjalti er vinstri bakvörður en Víkingur missti mann úr þeirri stöðu á dögunum þegar að Grétar Ali Khan gekk í raðir Gróttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.