19.01.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jardel til Kýpur (Staðfest)

Jardel í leik með Bolton

Mynd: Getty Images

Jardel í leik með Bolton

Mynd: Getty Images
Fyrrum brasilíski landsliðsmaðurinn Mario Jardel hefur öllum að óvörum gengið til liðs við Anorthosis Famagusta FC frá Kýpur á fimm mánaða samning með möguleika á öðru tímabili.
,,Ég er kominn hingað til að spila fótbolta, gefa allt mitt fyrir Anorthosis, skora mörk og standast væntingar. Anorthosis er sóknarsinnað lið sem eru að berjast um titilinn og það er aðalástæðan fyrir því að ég kom til félagsins. Ég vonast til að skora að minnsta kosti tíu mörk fyrir lok tímabilsins," sagði Jardel.
Jardel fór nýlega frá portúgalska félaginu SC Beira-Mar eftir að hafa skorað þrjú mörk í tólf leikjum fyrir félagið. Hann sló einmitt í gegn í Portúgal á síðasta áratugi með Porto.
Jardel fór nýlega frá portúgalska félaginu SC Beira-Mar eftir að hafa skorað þrjú mörk í tólf leikjum fyrir félagið. Hann sló einmitt í gegn í Portúgal á síðasta áratugi með Porto.
Heimild: Opinber heimasíða UEFA
