19.01.08 - 11:09
Magnús Már Einarsson
Hedwiges Maduro til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia hefur keypt miðjumanninn Hedwiges Maduro frá Ajax og samkvæmt spænskum fjölmiðlum er kaupverðið um það bil tvær milljónir evra.
Maduro sem getur einnig leikið í vörninni hefur gert fjögurra og hálfs árs samning við Valencia.
,,Ég er ánægður með að hafa skrifað undir hjá stóru félagi eins og Valencia," sagði Maduro sem kom upp úr unglingastarfi Ajax þegar að Ronald Koeman, núverandi þjálfari Valencia, þjálfaði liðið.
,,Það hjálpaði að Koeman er hérna en fyrst og fremst er þetta frábært félag."
Maduro er annar leikmaðurinn sem kemur til Valencia í mánuðinum en áður hafði félagið fengið argentínska miðjumanninn Ever Banega.
Maduro er ætlað að fylla skarð David Albelda og Manuel Fernandes. Albelda hefur líkt og Santiago Canizares og Miguel Angel Angulo verið hent úr liðinu hjá Valencia og Fernandes hefur verið lánaður til Everton.

Heimild: Reuters