19.01.09 - 19:03
Hafliði Breiðfjörð
Craig Bellamy til Manchester City (Staðfest)

Bellamy í landsleik á Íslandi í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Bellamy í landsleik á Íslandi í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Manchester City staðfesti á vefsíðu sinni nú í kvöld að framherjinn Craig Bellamy er genginn í raðir félagsins frá West Ham en kaupverðið er ekki gefið upp.
Bellamy skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Manchester City eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun og komist að samkomulagi um kaup og kjör.
Bellamy þekkir vel til Mark Hughes stjóra Man City en hann spilaði undir hans stjórn hjá Blackburn Rovers og spilaði svo marga af 54 landsleikjum sínum er Hughes var landsliðsþjálfari Wales.
Bellamy mun nú fara til Tenerife þar sem Manchester City er við æfingar þessa vikuna og verður klár til að vera í leikmannahópnum gegn hans gamla liði, Newcastle United miðvikudaginn 28. janúar næstkomandi. Enn er ekki búið að ákveða hvaða treyjunúmer hann fær.
,,Ég er ánægður með að fá að vinna aftur með Craig. Hann er framúrskrandi leikmaður sem kemur með gæði sem okkur vantar aðeins í liðið,\" sagði Hughes. ,,Hann hefur ótrúlegan hraða, og mikinn ákafa. Hann hefur frábært viðhorf á æfingum og verður frábær viðbót við hópinn.\"

Heimild: Vefsíða Manchester City