Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. janúar 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neville með skilaboð til Maguire: Getur búist við miklu skítkasti
Mynd: Getty Images
Gary Neville er mikill stuðningsmaður Manchester United eftir að hafa leikið fyrir félagið allan atvinnumannaferilinn og verið fyrirliði í fimm ár.

Fyrirliðinn Ashley Young var seldur til Inter í gær og tók Harry Maguire við bandinu. Miðvörðurinn Maguire, 27 ára, var keyptur til Man Utd síðasta sumar fyrir 80 milljónir punda.

Neville tjáði sig um fyrirliðaskiptin á Twitter og varaði Maguire við skítstorminum sem hann á eftir að fá yfir sig sem fyrirliði.

„Til hamingju! Þú getur búist við miklu skítkasti næstu ár. Ekki láta deigan síga því þú ert fyrirliði stærsta knattspyrnufélags heims sem mun rísa aftur upp og vinna titla," skrifaði Neville sem svar við yfirlýsingu Maguire eftir að hann fékk fyrirliðabandið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner