19.02.07 - 13:24
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Carlo Nash á láni til Wigan (Staðfest)

Nash er kominn til Wigan á láni

Mynd: Getty Images

Nash er kominn til Wigan á láni

Mynd: Getty Images
Carlo Nash, markmaður Preston, hefur gengið til liðs við Wigan á eins mánaðar lánssamningi vegna meiðsla Chris Kirkland og Mike Pollitt.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur þurft að verma varamannabekkinn á Deepdale þar sem hann hefur verið tregur á að skrifa undir nýjan samning þar á bæ.
,,Carlo er rétti maðurinn til að koma inn og spila undir þessum kringumstæðum. Ég efast ekki um hæfileika hans að koma aftur í Úrvalsdeildina," sagði Paul Jewell, stjóri Wigan.
,,Carlo er rétti maðurinn til að koma inn og spila undir þessum kringumstæðum. Ég efast ekki um hæfileika hans að koma aftur í Úrvalsdeildina," sagði Paul Jewell, stjóri Wigan.
Heimild: BBC
