Fotbolti.net
19.02.08 - 17:03
Magnús Már Einarsson

Þorsteinn Þorvaldsson í KA (Staðfest)

Þorsteinn Þorvaldsson (til hægri) er farinn í KA.

Þorsteinn Þorvaldsson (til hægri) er farinn í KA.

Canon

Mynd: Stefán Pálmason

KA úr fyrstu deild hefur fengið sóknar og kantmanninn Þorstein Þorvaldsson frá Magna Grenivík og hefur hann gert tveggja ára samning við félagið.
Þorsteinn lék með öðrum flokki KA 2005 og 2006 en hann hafði áður leikið með Völsungi og Eilífi í Mývatnssveit.

Síðastliðið sumar var hann lykilmaður í liði Magna og skoraði sjö mörk í annarri deildinni.

Hann var markahæsti leikmaður liðsins og hjálpaði því að halda sæti sínu í deildinni.

Þorsteinn var meðal annars valinn leikmaður 17.umferðar hér á Fótbolti.net í fyrra fyrir góða frammistöðu í mikilvægum útsigri Magna á Sindra.

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.