19.02.09 - 10:22
Brynjar Ingi Erluson
Jónas Grani Garðarsson í Fjölni (Staðfest)

Jónas Grani Garðarsson er genginn til liðs við Fjölni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Grani Garðarsson, fyrrum framherji FH í efstu deild karla er genginn til liðs við Fjölni í Grafarvogi og hefur hann gert samning við félagið sem gildir út þetta ár.
Jónas, sem er 35 ára gamall, fékk sig lausann frá FH fyrr í vetur og hefur nú samþykkt að leika með Fjölni út árið.
,,Það er mikið gleðiefni að tilkynna þetta, við hjá Fjölni höfum fulla trú á að Grani sé sá maður sem vanti inn í liðið. Við bjóðum hann velkominn í Fjölni,\" sagði í fréttatilkynningu frá Fjölni ídag.
Jónas Grani er uppalinn á Húsavík þar sem hann lék með Völsung, en fór síðan til FH þar sem hann spilaði í átta ár.
Hann átti þó bestu gengi að fagna tímabilið 2007, þegar hann skoraði 13 mörk í 18 leikjum fyrir Fram.