19.02.12 - 08:03
Hafliði Breiðfjörð
Dusan Ivkovic í Gróttu - Jónmundur áfram (Staðfest)

Dusan Ivkovic í leik með Þrótti.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Dusan Ivkovic hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Gróttu og mun einnig gefa kost á sér sem leikmaður með liðinu. Þá hefur félagið gengið frá því að Jónmundur Grétarsson leikur áfram með þeim á næstu leiktíð frá byrjun maí fram í ágúst er hann fer til náms í Bandaríkjunum.
Grótta féll úr 1. deildinni í fyrrahaust og leikur því í 2. deild í sumar. Sigurður Helgason þjálfar liðið en Guðmundur Magnússon aðstoðarmaður hans tilkynnti í lok janúar að hann myndi hætta af persónulegum ástæðum. Í hans stað var Ivkovic ráðinn aðstoðarþjálfari í meistara- og 2. flokki félagsins en hann kemur frá Þrótti þar sem hann hefur spilað undanfarin ár.
Dusan Ivkovic er fæddur árið 1980 í Serbíu. Hann flutti til Íslands árið 2006 en þá hafði hann leikið í serbnesku úrvalsdeildinni um nokkurt skeið með liðunum FK Zemun og FK Bezanija. Dusan gekk til liðs við KS/Leiftur þegar hann kom til landsins og lék með þeim í tvö ár. Sumarið 2008 lék hann með Selfossi í 1. deildinni og var valinn í lið ársins að tímabili loknu.
2009 gekk Dusan til liðs við Njarðvík en var keyptur til Þróttar í úrvalsdeildina seinna um sumarið og lék með þeim þangað til í haust. Þrátt fyrir að Dusan muni aðallega sinna starfi aðstoðarþjálfara hjá Gróttu ætlar hann að halda sér í formi og vera til taks í liðið ef með þarf.
Á vef Gróttu eru viðtöl við Dusan og Jónmund.
Smelltu hér til að sjá viðtalið við Dusan.
Smelltu hér til að sjá viðtalið við Jónmund.

Heimild: Vefur Gróttu | Vefur Gróttu (2)