Fotbolti.net
19.02.12 - 15:07
Hafliði Breiðfjörð

Otto Rehhagel tekur við Hertha Berlin (Staðfest)

Otto Rehhagel er tekinn við Hertha Berlin þrátt fyrir að vera orðinn 73 ára gamall.

Otto Rehhagel er tekinn við Hertha Berlin þrátt fyrir að vera orðinn 73 ára gamall.

Canon

Mynd: Getty Images

Otto Rehhagel var í dag ráðinn þjálfari þýska félagsins Hertha Berlin en þessi 73 ára gamli maður tekur við af Michael Skibbe sem var rekinn eftir aðeins fimm leiki, sem reyndar allir töpuðust.
,,Svo lengi sem ég lifi vil ég hafa spennu, mér finnst ég heilsuhraustur. Þess vegna tek ég þetta starf,\" sagði Rehhagel í dag.

,,Ég var vanur að spila hérna, þess vegna er þetta sérstakur staður. Ég vil að Berlin verði áfram í Bundesligunni.\"

Hertha hefur ekki náð sigri í síðustu 11 leikjum og er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Liðið tapaði 1-0 fyrir Borussia Dortmund í gær en þá stýrðu Rena Tretschok og Ante Covic liðinu tímabundið enda Skibbe rekinn fyrir viku síðan.

Undir stjórn Rehhagel urðu Grikkir Evrópumeistarar árið 2004. Hann hefur einnig stýrt Bayern Munchen, Kaiserslautern og Werder Bremen í þýsku Bundesligunni og vann deildina tvisvar með síðastnefnda liðinu.

Hann hefur ekki verið í starfi síðan hann var rekinn frá Grikkjum árið 2010. Hann var síðast í Bundesligunni með Kaiserslautern sem hann stýrði til sigurs árið 1998, ári eftir að hafa komið þeim upp í deildina.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.