Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
   mið 19. febrúar 2020 19:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Tala um það sem þið viljið eftir leikinn
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vildi ekkert tjá sig um bann Manchester City frá Evrópukeppnum fyrir leikinn gegn West Ham sem hefst klukkan 19:30.

City var á föstudag dæmt í tveggja ára bann frá Evrópukeppnum fyrir að brotið reglur um fjárhagslega háttvísi. Auk þess fékk félagið 30 milljóna evra sekt frá UEFA. Dómnum hefur verið áfrýjað til alþjóðlega íþróttadómstólsins, CAS.

Guardiola ræddi í fyrsta sinn við fjölmiðla eftir að tilkynnt var um bannið fyrir nokkrum mínútum síðan. Hann ræddi við Sky Sports, en vildi ekkert tjá sig um bannið þar sem framundan er leikur gegn West Ham.

„Við skulum tala um það sem þið viljið eftir leikinn. Núna einbeitum við okkur að því sem við erum að gera. Við reynum bara að spila okkar leiki," sagði Guardiola og bætti við: „Við styðjum félagið 100%."

Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin fyrir leikinn sem hefst eins og áður segir klukkan 19:30.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Man Utd 16 7 5 4 30 26 +4 26
7 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
8 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Bournemouth 16 5 6 5 25 28 -3 21
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner