Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   fim 19. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
KÁ fær fimm leikmenn (Staðfest)
Mynd: KÁ
KÁ var að krækja í fimm nýja leikmenn fyrir komandi átök í 3. deild eftir að Hafnfirðingar unnu 4. deild í fyrra án þess að tapa leik.

Stærsta nafnið er eflaust Kristján Ólafsson sem er fæddur um aldamótin og skoraði 6 mörk með KFG í 2. deildinni í fyrra. Hann á einnig leiki að baki fyrir FH, Njarðvík, ÍH, Hauka, Þrótt Vogum og Víking Ólafsvík.

Stefán Alex Ríkarðsson kemur með honum á milli félaga en hann er fæddur 2005 og spilaði 8 leiki með KFG í fyrra. Hann spilaði ellefu leiki fyrir KÁ sumarið 2024.

Birkir Brynjarsson er fæddur 2006 og kemur á láni frá uppeldisfélaginu Haukum, þar sem hann lék 7 deildarleiki í fyrra. Hann raðaði á sama tíma inn mörkum með 2. flokki.

Birkir skoraði með KÁ í Lengjubikarnum á dögunum en hann spilaði einnig tvo leiki fyrir félagið í 4. deild sumarið 2023.

Þá er Atli Hrafnkelsson kominn frá Þorláki. Atli er fæddur árið 2000 og uppalinn hjá FH. Hann er með yfir 100 KSÍ-leiki að baki fyrir ÍH og skoraði 3 mörk í 8 leikjum fyrir Þorlák á seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa verið hjá ÍH fyrri hlutann.

Að lokum er Daníel Hrafn Bjarnason, fæddur 2003, kominn úr röðum Smára. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en lék einnig með yngri flokkum Vals og tók sín fyrstu skref í meistaraflokki með KH.
Athugasemdir
banner