Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 09:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd sér eftir verðmiðanum á Rashford
Powerade
Marcus Rashford.
Marcus Rashford.
Mynd: EPA
Fer Delap eftir aðeins eitt ár með Chelsea?
Fer Delap eftir aðeins eitt ár með Chelsea?
Mynd: EPA
Þá er komið að slúðrinu á þessum ágæta fimmtudegi. Hér er allt það helsta sem er í gangi þessa stundina.

Manchester United sér eftir því að hafa samþykkt að selja Marcus Rashford (28) til Barcelona fyrir 26 milljónir punda þar sem félagið telur hann núna 50 milljón punda virði. (Star)

Marcos Senesi (28), varnarmaður Bournemouth, vill ganga í raðir Barcelona í sumar en hann hefur ákveðið að skrifa ekki undir nýjan samning við núverandi vinnuveitendur sína. (TeamTalk)

Liam Delap (23) mun líklega yfirgefa Chelsea í sumar eftir aðeins eitt ár hjá félaginu en félög eins og Manchester United, Newcastle og Everton munu sýna honum áhuga. (CaughtOffside)

Man Utd er tilbúið að leyfa kantmanninum Jadon Sancho (25) að fara frítt í sumar. (Sun)

West Ham leiðir nú kapphlaupið um kanadíska sóknarmanninn Promise David (24) frá Union Saint-Gilloise í Belgíu. (TeamTalk)

Tottenham mun mögulega eyða miklum fjármunum í sumar og er Morgan Rogers (23), kantmaður Aston Villa, á óskalistanum. (Football Insider)

Richarlison (28), sóknarmaður Tottenham, gæti þó yfirgefið félagið. Flamengo í Brasilíu og Atletico Madrid á Spáni eru að sýna honum áhuga. (Fichajes)

Bayer Leverkusen vill sækja miðjumanninn Leon Goretzka (31) frá Bayern München í sumar en hann vill frekar fara til Englands þar sem Arsenal hefur sýnt honum áhuga. (Bild)

AC Milan hefur trú á því að Luka Modric (40) muni taka eitt ár til viðbótar með liðinu. (Calciomercato)
Athugasemdir
banner