Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   fim 19. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Töpuðu 8-0 og fá 120 þúsund krónur í sekt
Mynd: Eiríkur Arnar Hansen
Léttir tefldi fram ólöglegum leikmanni í leik liðsins gegn Álftanesi í Lengjubikarnum 16. febrúar og fær 120 þúsund króna sekt fyrir, en úrslit leiksins standa óbreytt þar sem Álftanes vann 8-0.

Birkir Kjartansson, sem var skráður sem leikmaður ÍR, spilaði með Létti í leiknum og var ekki á leikskýrslu. Af þessum sökum fær Léttir 120 þúsund krónur í sekt,

Af vefsíðu KSÍ:
10. SEKTIR

Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 60.000 og að auki kr. 60.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000

11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.
Athugasemdir
banner
banner