Fotbolti.net
19.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

KB fær liðsstyrk fyrir sumarið (Staðfest)

Freyr Alexandersson mun leika með KB í sumar.

Freyr Alexandersson mun leika með KB í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Lið KB í 3. deildinni er að mótast fyrir komandi tímabil en liðið er starfrækt sem varalið Leiknis í Breiðholti. KB hefur verið að fá til sín góðan liðsstyrk að undanförnu en þar á meðal eru fjórir leikmenn úr meistaraflokkshópi Leiknis frá því í fyrra.
Það eru þeir Gunnar Jarl Jónsson, Freyr Alexandersson, Sigurður Kristján Nikulásson og Kristján Páll Jónsson. Þeir tveir fyrst nefndu eru varnarmenn sem hafa verið í lykilhlutverki hjá Leikni síðustu ár en Freyr var fyrirliði liðsins í fyrra.

„Gunnar og Freyr búa yfir mikilli reynslu sem mun vafalítið reynast vel fyrir þá leikmenn úr 2. flokki Leiknis sem eru að fá sína fyrstu meistaraflokksreynslu með KB. Siggi og Stjáni eru virkilega sprækir strákar sem skapa mikla ógn í sóknarleiknum,” sagði Magnús Einarsson, knattspyrnustjóri KB.

Freyr hætti með Leikni eftir síðasta tímabil þar sem hann tók við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Val við hlið Elísabetar Gunnarsdóttur. „KB er meðal annars stofnað fyrir þá Leiknismenn sem geta ekki æft af fullum krafti. Ljóst er að Freyr getur ekki spilað alla leiki með okkur en vonandi sem flesta,” sagði Magnús.

Fleiri leikmenn hafa skipt yfir í KB, meðal annars miðjumaðurinn Stefán Ingi Gunnarsson sem lék með Magna í 2. deildinni í fyrra á lánssamningi frá Leikni.

Þá hefur Ingþór Theódór Guðmundsson skipt aftur yfir í KB en hann var valinn leikmaður ársins hjá liðinu í fyrra en hefur leikið með Leikni nú í vetur. Einnig er KB að fá markvörðinn Ragnar Daða Jóhannsson frá Grindavík.

„KB er að fara í sitt annað starfsár og þetta varalið Leiknis fer ört stækkandi. Góður kjarni hefur skapast og ljóst að liðið getur gert ágætis hluti í sumar. Það gætu enn bæst við fleiri sterkir leikmenn, við lokum á ekkert. Auk þess munu nokkrir leikmenn úr 2. flokki Leiknis spila stórt hlutverk svo þetta stefnir í ansi skemmtilegt tímabil,” sagði Magnús að lokum.
Magnús Einarsson knattspyrnustjóri KB.

Magnús Einarsson knattspyrnustjóri KB.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.