19.04.10 - 07:40
Hafliði Breiðfjörð
Arna Pétursdóttir í Þrótt (Staðfest)

Arna Pétursdóttir leikur með Þrótti í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Særós Sigþórsdóttir

Þróttarar hafa fengið liðsstyrk í 1.deild kvenna en Arna Pétursdóttir er gengin til liðs við félagið frá ÍA.
Arna er 19 ára og leikur yfirleitt á miðjunni. Undanfarin tvö ár hefur hún leikið með meistaraflokki ÍA þar sem hún á að baki 24 leiki.
Arna lék sinn fyrsta mótsleik fyrir Þrótt á laugardaginn en hún kom inná sem varamaður í 9-1 sigri Þróttar á HK/Víking í Lengjubikarnum.
Þróttarar höfðu fyrr í vetur fengið til sín þær Eydísi Örnu Líndal frá Sindra, Hörpu Lind Guðnadóttur frá Fjölni og markahrókinn Hrefnu Huld Jóhannsdóttur frá KR.
Lið Þróttar er sem stendur í efsta sæti í riðli 1 í C deild Lengjubikarsins eftir að hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína.

Heimild: Heimasíða Þróttar