Fotbolti.net
19.04.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Fannar Baldvinsson og Sölvi Þrastarson í Aftureldingu (Staðfest)

Sölvi Þrastarson (til vinstri).

Sölvi Þrastarson (til vinstri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding fékk góðan liðsstyrk í vikunni fyrir baráttuna í 2. deild karla á í sumar þegar Fylkir lánaði félaginu tvo leikmenn út komandi leiktíð.
Þetta eru þeir Fannar Baldvinsson og Sölvi Þrastarson sem komu báðir frá Fylki eins og fyrr sagði.

Fannar Baldvinsson er 21 árs gamall. Hann er kant- og sóknarmaður sem hafði leikið á láni hjá ÍH/HV í 2. deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann lék 8 leiki.

Sölvi Þrastarson er 19 ára gamall varnarmaður sem hefur ekki enn leikið meistaraflokksleik á Íslandsmóti.

Afturelding féll úr 1. deildinni á síðustu leiktíð en miklar breytingar hafa orðið á liðinu í vetur. Izudin Daði Dervic þjálfar liðið en hann tók við af Ólafi Ólafssyni í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.