Fotbolti.net
19.04.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

ÍBV fær þrjár stúlkur frá Suður Afríku (Staðfest)

ÍBV fær þrjár stúlkur frá Suður Afríku (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV hefur fengið mikinn liðsstyrk í kvennalið sitt því þrír leikmenn frá Suður Afríku eru gengnar til liðs við félagið og leika með þeim komandi sumar.
Þær heita Antonia Carelse sem er 26 ára, Lerato Kgasago sem er 18 ára og Rosa Jujana sem er 29 ára.

Þær höfðu allar æft með liðinu á Alicante á Spáni þar sem liðið var í átta daga við æfingar og eru þegar komnar með félagaskipti í ÍBV.

Á vefnum GSport er fjallað um komu leikmannana til Vestmannaeyjafélagsins og þar kemur fram að þær hafi gert tveggja ára samning.

Lerato Kgasago sem er 18 ára er yngsta konan sem fer frá Suður Afríku til að fá samning sem atvinnumaður í Evrópu segir á vefnum.

Rose Jijane hefur áður leikið með FC Indiana í Bandaríkjunum og er landsliðskona Suður Afríku og Antonia Carelse var tímabilið 2003-2004 með kvennaliði Arsenal á Englandi en spilaði síðast með Santos kvennalðinu í Höfðaborg í Suður Afríku

Heimild: Gsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.