Fotbolti.net
19.05.05 - 16:51
Magnús Már Einarsson

Löring Antal til KA (Staðfest)

Löring Antal til KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Merki

1.deildarlið KA hefur fengið liðsstyrk því ungverski varnarmaðurinn Lörinc Antal mun leika með liðinu í sumar. Antal sem er 33 ára var til reynslu hjá KA í síðastliðnum mánuði en hann kom til liðsins eftir að Sandor Matus landi hans og markvörður KA benti forráðamönnum liðsins á hann.
Antal á að baki 278 leiki í ungversku úrvalsdeildinni og eitt tímabil í Finnlandi en hann og Matus léku á sínum tíma saman. Spennandi verður að sjá hvernig Antal gengur með KA en liðið byrjaði vel í 1.deildinni með 3-0 sigri á Völsung síðastliðinn mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.