19.05.07 - 21:28
Margrét Lára Viðarsdóttir
Lára Hafliðadóttir í HK/Víking (Staðfest)

Mynd: www.hk.is

Mynd: www.hk.is

Lára Hafliðadóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við HK/Víking á ný eftir tveggja og hálfs árs dvöl hjá Breiðabliki. Hún er þar með lögleg frá og með byrjun Íslandsmótsins en HK/Víkingur sækir Leikni R. heim í fyrstu umferð 1. deildarinnar á þriðjudagskvöldið.
Lára lék með meistaraflokki HK/Víkings frá 14 ára aldri, eða frá stofnun hans, og þar til hún fór yfir til Breiðabliks. Með Blikum hefur Lára spilað 17 leiki í úrvalsdeildinni undanfarin tvö ár og skorað eitt mark. Hún á að baki 14 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Þetta er enn ein blóðtakan fyrir Breiðablik en þær hafa misst marga af máttarstólpum liðsins frá síðasta sumri þar á meðal Eddu Garðarsdóttur, Ólínu G Viðarsdóttur, Þóru Helgadóttur, Hildi Sævarsdóttur, Guðlaugu Jónsdóttur, Elín Önnu Steinarsdóttur sem og Ernu B Sigurðardóttur sem er meidd.