Fotbolti.net
19.06.06 - 15:52
Guðmundur Dagur Ólafsson

Jarosik til Celtic (Staðfest)

Farinn til Skotlands

Farinn til Skotlands

Canon

Mynd: Getty Images

Celtic hafa gengið frá kaupum á tékkneska miðjumanninum Jiri Jarosik frá Englandsmeisturum Chelsea. Hann skrifar undir 3 ára samning við félagið með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Chelsea hafa ekkert á móti því að Jarosik færi sig um set þar sem hann hefur lítið fengið að spila hjá Chelsea en hann var á láni allt síðasta tímabil hjá Birmingham og gat ekki komið í veg fyrir að þeir féllu úr Úrvalsdeildinni.

Það voru þónokkur lið orðuð við Jarosik en honum er ætlað að fylla skarð Roy Keane hjá félaginu en hann hætti sem kunnugt er knattspyrnuiðkun fyrir stuttu.

Jarosik er hæstánægður með að vera kominn til Glasgow.

"Það er mikill heiður að fara til félags sem er jafn stórt og Celtic. Ég vona að ég eigi eftir að hjálpa félaginu að ná áframhaldandi velgengni," sagði Jarosik við opinbera heimsíðu Celtic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.