19.06.07 - 10:39
Magnús Már Einarsson
Iaquinta til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus sem komst í vor aftur upp í Serie A hefur keypt framherjann Vincenzo Iaquinta frá Udinese á 11,3 milljónir evra.
Þessi 27 ára gamli leikmaður gerði fimm ára samning við Juventus en hann skoraði fjórtán mörk fyrir Udinese í Serie A á nýliðinni leiktíð.
Koma Iaquinta eykur vangavelturnar um framtíð David Trezeguet en hann hefur ekki verið í náðinni hjá Juventus. Þessi franski framherji hefur verið orðaður við Valencia og Olympique Lyon.
Talið er að Iaquinta sé ekki eini leikmaðurinn sem Claudio Ranieri þjálfari Juventus mun fá til félagsins í sumar og er búist við að nokkrir leikmenn í viðbót gangi til liðs við Juve á næstu vikum.

Heimild: Reuters