19.06.07 - 11:21
Hörður Snævar Jónsson
Suazo samdi við AC Milan í stað Inter (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
David Suazo framherjinn frá Hondúras hefur samið við AC Milan en hann hafði áður samþykkt að ganga til liðs við erkifjendurna í Inter. Suazo var á mála hjá Cagliari.
,,Hondúrski framherjinn mun vera í Milan búningnum á næsta tímabili," segir í tilkynningu á heimasíðu AC Milan. ,,Félagaskiptin frá Cagliari til Milan gengu í gegn eftir samningaviðræður um kvöldið."
Ekkert kaupverð var gefið upp en talið er að það sé um 14 milljónir evra. Þessi 27 ára gamli framherji skoraði 14 mörk á síðustu leiktíð.
Ekkert kaupverð var gefið upp en talið er að það sé um 14 milljónir evra. Þessi 27 ára gamli framherji skoraði 14 mörk á síðustu leiktíð.
Heimild: Reuters
