Fotbolti.net
19.06.09 - 06:00
Davíð Þór Gunnarsson

Dean Windass til Darlington (Staðfest)

Dean Windass sést hér fagna marki í leik með Hull City

Dean Windass sést hér fagna marki í leik með Hull City

Canon

Mynd: Getty Images

Dean Windass hefur skrifað undir samning við enska félagið Darlington en hann kemur frá Hull City.
Windass sem er orðinn fertugur að aldri mun leika með Darlington ásamt því að vera spilandi þjálfari en hann mun vera aðstoðarmaður Colin Todd stjóra félagsins.

Windass hefur verið orðaður við þónokkur lið úr ensku þriðju deildinni en þar ber helst að nefna Port Vale sem reyndu hvað þeir gátu til að krækja í kappann.

Darlington mun vera tíunda félagið sem Windass leikur með á sínum 19 ára ferli sem atvinnumaður.

Stuðningsmenn Hull munu líklega seint gleyma Dean Windass en hann er einmitt maðurinn sem skaut Hull upp í efstu deild á Englandi tímabilið 2007/08 þegar hann tryggði liðinu sigur gegn Bristol City í úrslitum upp á sæti í úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.