19.06.09 - 15:15
Magnús Már Einarsson
Jordi Gomez til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roberto Martinez nýráðinn stjóri Wigan hefur gengið frá fyrstu kaupum sumarsins en hann hefur fengið Jordi Gomez frá Espanyol.
Gomez, sem er 24 ára, leikur framarlega á miðjunni en hann var í láni hjá Swansea á síðustu leiktíð þar sem aðh ann lék undir stjórn Martinez.
Gomez hefur gert þriggja ára samning við Wigan en hann þótti standa sig mjög vel með Swansea á síðasta tímabili.
,,Jordi er gæðaleikmaður. Hann er með frábæran vinstri fót og það er gaman að horfa á hann spila,\" sagði Martinez.
,,Ég er ekki í nokkrum vafa um að hann eigi eftir að standa sig vel í úrvalsdeildinni.\"

Heimild: Sky