19.06.09 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Thomas Vermaelen til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur keypt varnarmanninn Thomas Vermaelen frá Ajax. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en enskir fjölmiðlar telja það vera í kringum tíu milljónir punda.
Vermaelen er 23 ára gamall Belgi en hann var fyrirliði Ajax á síðustu leiktíð.
,,Að fá Thomas eru frábær kaup fyrir Arsenal og við erum himinlifandi með að hann sé að ganga til liðs við okkur,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
,,Thomas er örfættur miðvörður en hann er fjölhæfur og getur líka leikið sem vinstri bakvörður.\"
,,Hann er sterkur tæknilega, hefur hugarfar sigurvegara og ég er ekki í vafa um að koma hans mun styrkja liðið okkar. Thomas Vermaelen mun gera það gott með Arsenal.\"

Heimild: BBC