Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 19. júní 2019 15:49
Elvar Geir Magnússon
Heaton hafnar samningstilboði Burnley
Tom Heaton.
Tom Heaton.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Markvörðurinn Tom Heaton hefur hafnað tilboði frá Burnley um nýjan samning og gæti yfirgefið félagið á frjálsri sölu næsta sumar.

Hinn 33 ára Heaton á eitt ár eftir af samningi sínum við Burnley en Aston Villa og Bournemouth hafa bæði sýnt honum áhuga.

Heaton er í gríðarlegu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Burnley. Endurkoma hans í markið eftir meiðsli á síðasta tímabili hjálpuðu liðinu að klifra úr fallhættu.

Heaton er númer tvö á eftir Jordan Pickford í enska landsliðinu og var í hópnum í Þjóðadeildinni.

En nú hefur Heaton hafnað tilboði frá Burnley og gæti hann farið til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner