Enska B-deildarfélagið Norwich City hefur klófest enska markvörðinn Louie Moluden á frjálsri sölu frá Crystal Palace.
Þessi 23 ára gamli markvörður var að renna út á samningi hjá Palace og ákvað félagið að bjóða honum ekki nýjan samning.
Norwich stökk því á tækifærið og hefur nú landað honum en hann gerði tveggja ára samning með möguleika á ársframlengingu til viðbótar.
Moulden kemur til með að vera varamarkvörður Norwich fyrir Dan Grimshaw sem kom til félagsins á dögunum frá Plymouth.
We've completed the signing of goalkeeper Louie Moulden ????
— Norwich City FC (@NorwichCityFC) June 18, 2025
Athugasemdir