Fotbolti.net
19.07.06 - 21:23
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Cannavaro og Emerson til Real Madrid (Staðfest)

Emerson og Cananvaro eru á leiðinni til Real Madrid

Emerson og Cananvaro eru á leiðinni til Real Madrid

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hafa gengið frá kaupunum á Fabio Cannavaro og Emerson frá ítalska liðinu Juventus. Þar munu félagarnir, sem skrifuðu undir tveggja ára samning með möguleika á því þriðja, hitta fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Juve, Fabio Capello.
Ekki er vitað hversu hátt kaupverðið er en spænsk útvarpsstöð greindi frá því að samanlagt verð á leikmönnunum væri 13,7 milljónir punda.

Þetta eru fyrstu kaup Ramon Calderon sem nýr forseti félagsins en hann er einnig talin vera á eftir samherja Cannavaro og Emerson hjá Juve, Gianluca Zambrotta, og Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United.

Þá eru Cannavaro og Emerson einnig fyrstu stóru nöfnin sem yfirgefa Juve en þeir voru felldir niður í Serie B með 30 mínusstig eins og flestir orðið vita núna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.