19.07.07 - 10:47
Magnús Már Einarsson
Lee Hendrie til Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur fengið miðjumanninn Lee Hendrie frítt en samningur hans við Aston Villa var útrunninn. Þessi þrítugi leikmaður sem var hjá Aston Villa í þrettán ár var lengi í láni hjá Stoke City á síðustu leiktíð.
Hendrie kemur til Sheffield United eftir að Bryan Robson stjóri liðsins gafst upp á að reyna að fá Thomas Gravesen frá Celtic.
,,Ég hefði viljað vera áfram í úrvalsdeildinni en þetta er stórt félag og möguleikinn að vinna með þessum stjóra var mjög aðlaðandi. Ég held að ég geti lært mikið af honum (Robson), hann mun gefa mér góð ráð," sagði Hendrie.
,,Ég hef staðnað svolítið undanfarin ár en ég er mjög spenntur fyrir þessari nýju áskorun og vongóður um að við getum verið að berjast um að komast upp," bætti Hendrie við.