19.07.07 - 11:33
Magnús Már Einarsson
Walter Pandiani til Osasuna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Osasuna hefur fengið framherjann Walter Pandiani frá Espanyol og hefur þessi 31 árs gamli Úrúgvæi gert þriggja ára samning við félagið.
Pandiani skoraði alls átta mörk í 52 deildarleikjum með Espanyol á því einu og hálfa ári sem hann var hjá félaginu. Hann fór hins vegar á kostum í Evrópukeppni Félagsliða á síðustu leiktíð og skoraði ellefu mörk í fjórtán leikjum þegar að Espanyol komst í úrslit.
Pandiani hefur einnig leikið með Deportivo La Coruna, Mallorca og Birmingham á ferlinum en hann kom til Espanyol frá enska liðinu í janúar 2005.
Osasuna hefur fengið nýja framherja í sumar en auk Pandiani hefur Javier Portillo komið frá Gimnastic Tarragona og Xavier Margairaz frá FC Zürich í Sviss.

Heimild: Heimasíða UEFA