Fotbolti.net
19.07.07 - 18:58
Hörður Snævar Jónsson

Heiðar Helguson til Bolton (Staðfest)

Heiðar Helguson til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Heiðar Helguson hefur gengið í raðir Bolton, frá þessu er greint á fréttavef Morgunblaðsins. Heiðar skrifar undir þriggja ára samning við Bolton. Kaupverðið er 1,9 milljónir punda og getur hækkað í 2.2 milljónir punda.
Heiðar hefur verið í herbúðum Fulham frá árinu 2005 en þá kom hann frá Wattford. Mikið hefur verið rætt um framtíð Heiðars hjá Fulham undanfarið og var hann til að mynda orðaður við sitt gamla félag Wattford en fór á endanum á Rebook Stadium.

,Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og ég lít á þessi skipti sem stórt skref upp á við fyrir mig," sagði Heiðar við mbl.is. Heiðar sem er þrítugur að aldri tók nýlega þá ákvörðun að hætta að leika með íslenska landsliðinu.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.