Fotbolti.net
19.07.09 - 21:34
Magnús Már Einarsson

Dusan Ivkovic og Milos Tanasic í Þrótt (Staðfest)

Dusan Ivkovic í leik með Njarðvík á dögunum.

Dusan Ivkovic í leik með Njarðvík á dögunum.

Canon

Mynd: Halldór Rósmundur

Þróttarar hafa fengið Dusan Ivkovic og Milos Tanasic til liðs við sig frá Njarðvík.
Dusan er öflugur varnarmaður en hann kom til Njarðvíkinga frá Selfyssingum fyrir tímabilið. Dusan hefur leikið hér á landi undanfarin fjögur ár, fyrst með KS/Leiftri árið 2006 og 2007 en í fyrra lék hann með Selfyssingum í fyrstu deildinni.

Dusan var valinn í lið ársins í annarri deildinni árið 2007 og í fyrra var hann einnig valinn í lið ársins í fyrstu deildinni þegar hann lék 21 leik með Selfyssingum og skoraði tvö mörk.

Milos er miðjumaður en hann hefur einnig leikið með KS/Leiftri og Keflavík hér á landi. Hann er sonur Marko Tanasic, þjálfara Njarðvíkur.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild og geta leikið með Þrótti gegn Breiðablik í Pepsi-deildinni annað kvöld sem og enski framherjinn Sam Malsom sem kom til Þróttara frá B36 í Færeyjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.